Kárahnjúkavirkjun
Kárahnjúkavirkjun *** Local Caption *** Kárahnjúkavirkjun er 690 MW vatnsaflsvirkjun í byggingu á hálendi Íslands norðan Vatnajökuls. Virkjuninni er ætlað að sjá væntanlegu álveri Alcoa á Reyðarfirði fyrir raforku og hefur verið nefnd stærsta framkvæmd Íslandssögunnar. Þann 30. nóvember 2007 var virkjunin formlega gangsett, um tveimur mánuðum á eftir áætlun, við athöfn þar sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra gáfu fyrirskipanir.[1][2]
Framkvæmdin gengur út á að virkja Jökulsá á Dal (Jökulsá á Brú), Jökulsá í Fljótsdal, Kelduá og þrjár þverár hennar.