Herðubreiðarlindir
Herðubreiðarlindir *** Local Caption *** Land að Herðubreið, um 175 km2 að stærð, var friðlýst árið 1974 og er svæðið friðland. Hvatinn að friðlýsingu var líklega sú tign sem Herðubreið ber, ásamt því að á bökkum Lindaár og í Grafarlöndum er gróskumikill og fjölbreyttur gróður, miðað við hæð yfir sjávarmáli. Mest ber á ætihvönn, gulvíði, grávíði og grasvíði. Litskrúðugust er eyrarrós sem blómstrar frá miðjum júlí og slær þá bleikum lit á eyrar og mela. Aðdáunarvert er að sjá fjölda tegunda sem teljast til frumstæðra plantna prýða hraunin.