Vopnafjörður

www.islandsmyndir.is

Myndir má ekki nota nema með leyfi höfundar

Vopnafjörður
Vopnafjörður
Vopnafjörður *** Local Caption *** Vopnafjörður er breiður og nær á milli Digraness og Kollumúla á norðausturströnd landsins. Sunnan fjarðarins eru há fjöll og ber þar mest á Krossavíkurfjöllum, 1.079 metra há. Norðan hans eru ávala heiðar þar sem nokkur áberandi, stakstæð nærri þúsund metra há fjöll sem hreykja sér yfir umhverfið. Inn af firðinum ganga þrír megindalir með nokkru undirlendi, mest í Hofsárdal. Kolbeinstangi, mjór og alllangur, skagar út í fjörðinn en á honum stendur kaupstaður héraðsins, Vopnafjörður. Þar hefur verið verslunarstaður frá fornu fari og á einokunartíma var þar einn af þremur verslunarstöðum á Austurlandi. Aðalatvinnuvegir eru útgerð, fiskvinnsla og þjónusta, úrvinnsla landbúnaðarafurða. Auk hefðbundins lanbúnaðar er umtalsverð loðdýrarækt og hlunnindabúskapur Vopnafjörður er fallegt og blómlegt hérað og þekkt fyrir verðursæld
Rafn Sig,-